Hlauparar
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Ég ætla að fara 10km til minningar um bestu mömmu sem barðist hetjulega við brjóstakrabbamein en tapaði þeirri baráttu allt of snemma í blóma lífsins.
Langar að safna áheitum fyrir Göngum Saman sem styður við grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini en þetta félag var mömmu mjög kært.
En ég ætla ekki ein því ég ætla að “hlappa” með góðum vinahóp og góðri vinkonu sem er algjör ofurkona og er að taka sitt brjóstakrabbamein í bakaríið! Hún ætlar um leið að safna áheitum fyrir Ljósið sem hefur verið henni ómetanlegt í gegnum hennar ferli.
Göngum Saman
Styrktarfélagið Göngum saman hefur það að markmiði að styrkja grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini. Göngum saman leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar bæði til heilsueflingar og til að afla fjár í styrktarsjóð félagsins.
Nýir styrkir