
Vegna takmarkaðs fjölda bílastæða í miðbænum eru hlauparar hvattir til að skilja bílinn eftir heima. Lögreglan mun sekta alla sem leggja ólöglega.
TRUFLUN Á UMFERÐ FÖSTUDAGINN 22. ÁGÚST OG LAUGARDAGINN 23. ÁGÚST 2025
Nauðsynlegt er að loka götum á meðan Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram og aðeins á undan. Búast má við truflun á umferð meðan á hlaupi stendur og því þurfa hlauparar, bílstjórar og aðrir vegfarendur að gæta varúðar.
Eftirfarandi eru upplýsingar um lokanir á vegum Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka en athugið að stór hluti miðbæjarins er auk þess lokaður vegna Menningarnætur, sjá nánar á menningarnott.is.
LOKANIR Á GÖTUM FRÁ KL. 16:00 FÖSTUDAGINN 22. ÁGÚST
101 Reykjavík
Lækjargata og Fríkirkjuvegur milli Hverfisgötu og Skothúsvegar
Sóleyjargata
LOKANIR Á GÖTUM FRÁ KL. 00:00 LAUGARDAGINN 23. ÁGÚST
101 Reykjavík
Amtmannsstígur
Skólastræti
Þingholtsstræti
Skálholtsstígur
Bókhlöðustígur
LOKANIR Á GÖTUM FRÁ KL. 08:00-15:00
101 Reykjavík
Ánanaust (lokað frá 09:00-11:30)
Fiskislóð (lokað frá 09:00-11:30)
Hólmaslóð (lokað frá 9:00-11:30)
Grandagarður (lokað frá 09:00-11:30)
Mýrargata (lokað frá 9:00-12:00)
Barónstígur milli Fjölnisvegar og Gömlu Hringbrautar.
Laufásvegur
Bergstaðastræti
Njarðargata neðan Fjönisvegar
Fjólugata
Bragagata neðan Urðarstígs
Baldursgata neðan Urðarstígs
Skothúsvegur
Þingholtsstræti
Grundarstígur
Grettisgata
Barónstígur milli Hverfisgötu og Grettisgötu
Laugavegur
Hverfisgata
Frakkastígur
104 Reykjavík
Skeiðarvogur milli Suðurlandsbrautar og Gnoðarvogs (lokað frá 9:00-13:30)
105 Reykjavík
Kringlumýrarbraut frá Borgartúni inn á Sæbraut
Sæbraut að Holtavegi (umferð til og frá Sundahöfn er um Vatnagarða)
Katrínartún (lokað frá 9:00-13:00)
Miðtún (lokað frá 9:00-13:00)
Hátún milli Miðtúns og Sóltúns (lokað frá 9:00-13:00)
Hofteigur (lokað frá 9:00-13:00)
110 Reykjavík
Sævarhöfði frá Svarthöfða að Bíldshöfða (lokað frá 9:00-14:30)
EINSTEFNA
Einstefna verður á eftirfarandi götum. Athugið að göturnar munu lokast alveg í stutta stund vegna fjölda þegar flestir hlauparar fara í gegn.
107 RVK og 170 Seltjarnarnes
Ægisíða og Nesvegur í vestur (8:00-10:30)
Suðurströnd í átt að Gróttu (8:00-11:00)
Lindarbraut í átt að Esju (8:00-11:00)
Norðurströnd í átt að miðbæ (8:00-11:30)
Eiðsgrandi í átt að Granda (8:00-12:00)
104 Reykjavík
Gnoðarvogur í átt að Elliðaám (9:30-13:00)
Skeiðarvogur frá Langholtsvegi að Gnoðarvogi (9:30-13:00)
110 Reykjavík
Sævarhöfði til norðurs frá Malarhöfða (9:00-14:00)
TRUFLUN Á UMFERÐ FRÁ KL. 08:00-15:00
101 Reykjavík
Hringbraut við Njarðargötu
102 Reykjavík
Suðurgata
Sturlugata
Sæmundargata
Eggertsgata
Flugvallarvegur við Hlíðarenda
104 Reykjavík
Engjavegur við Gnoðarvog
Álfheimar við Glæsibæ
Suðurlandsbraut við Langholtsveg
105 Reykjavík
Gatnamót Borgartúns og Katrínartúns
Gatnamót Hofteigs og Reykjavegar
Gatnamót Hofteigs og Gullteigs
107 Reykjavík
Lynghagi
108 Reykjavík
Stjörnugróf við Traðarland
110 Reykjavík
Naustabryggja
Sævarhöfði
GÖNGU- OG HJÓLASTÍGAR
Vegfarendur á eftirfarandi göngu- og hjólastígum eru beðnir að víkja fyrir hlaupurum þennan dag.
Göngubrú yfir Kringlumýrarbraut
Þvottalaugastígur í Laugardalnum
Stígur meðfram Suðurlandsbraut
Göngubrú yfir Miklubraut
Göngustígur hjá Rauðagerði og Ásenda
Göngu- og hjólasgígar í Elliðaárhólma
Göngu- og hjólastígar meðfram Rafstöðvarvegi
Göngustígur og brýr meðfram Knarrarvogi, Naustavogi, Sævarhöfða og Naustabryggju
Göngustígur á Geldinganesi.
Göngustígur í Fossvogi að Öskjuhlíð
Hjólreiðastígur frá Kirkjugarði, meðfram Öskjuhlíð að Flugvallarvegi
Göngubrú yfir Hringbraut og meðfram Vatnsmýrarvegi.
HVENÆR FARA HLAUPARAR HJÁ?
Á kortinu hér fyrir neðan má sjá hvenær hlauparar fara hjá vinsælum hvatningarstöðum á leiðinni. Sjá nánar um góða hvatningarstaði hér.
