Skráning góðgerðafélaga í áheitasöfnun Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2024 hefst í mars. Félög sem tóku þátt í söfnuninni árið á undan fá póst þar sem þau eru hvött til að yfirfara skráningarupplýsingar sínar.
Ný félög sem hafa áhuga á að taka þátt í áheitasöfnuninni er bent á að senda upplýsingar um nafn, kennitölu og bankareikning félags á netfangið [email protected]. Skráningu góðgerðafélag lýkur 2. ágúst 2024. Áheitasöfnunin er opin til miðnættis mánudaginn 26. ágúst 2024.
Áheitasöfnun Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka er opin fyrir góðgerðafélög sem hafa verið formlega stofnuð á Íslandi og eru með starfandi stjórn og kennitölu. Ekki er hægt að skrá félög sem nota kennitölur eða bankareikninga einstaklinga eða fyrirtækja. Miðað er við að félög í áheitasöfnuninni hafi eitthvert af eftirfarandi rekstrarformum: félagasamtök, áhugamannafélag eða sjálfseignarstofnun sem ekki stundar atvinnurekstur.
Hér er hægt að lesa sér til um að stofna félag.
Reglur góðgerðafélaga
- Góðgerðarfélag þarf að vera með kennitölu og bankaupplýsingar sem samsvara kröfu skattsins um skráningu á almannaheillaskrá.
- Upplýsingar inná hlaupastyrk skulu vera á íslensku og ensku og uppfærðar árlega.
- Hverskyns ósæmileg framkoma, skeytingarleysi um lög eða virðingarleysi við mannhelgi og mannréttindi getur leitt til afskráningar eða neitun um aðild að hlaupastyrk og brottrekstrar úr hlaupinu.
- Góðgerðarfélög mega ekki gefa þátttakendum veitingar á meðan á hlaupi stendur.
- Góðgerðarfélög standi fyrir hvatningu á braut til að vera sýnilega fyrir sína þátttakendur og hvetja þá til dáða.
- Góðgerðarfélögin mæti á fundi og miðli upplýsingum áfram sem borist hafa til að allir séu upplýstir.
- Ekki má endurnýta kennitölu annara félaga til nýrra styrkja, heldur stofna nýtt félag um hvert málefni/góðgerðarfélag.
- Hvert félag sér um sín markaðsmál og sýnileika. RMÍ mun árlega senda upplýsingapakka sem mun nýtast félögunum að koma sér á framfæri.
- RMÍ má neita félagi aðgang að hlaupastyrk telji þau ástæðu til.
- Góðgerðarfélag þarf að vera inná fésbókarhóp Hlaupastyrks og taka þátt í umræðum þar inni.