Hálfmaraþon - 21,1 km

Fyrsta hálfmaraþonið fór fram árið 1984 en þá tóku 68 þátt í hálfmaraþon vegalengdinni. Undanfarin ár hafa um 3000 hlauparar verið skráðir til þátttöku í hálfmaraþon Reykjavíkurmaraþons.

Hálfmaraþon er 21,1 km langt og er ræst á sama tíma og maraþon vegalengdin.

Ekki er mælt með því að óvanir hlauparar hlaupi þessa vegalengd enda ekki á allra færi að hlaupa rúman 21 kílómeter.

    Þátttakendur

    Öll sem eru 15 ára eða eldri geta skráð sig og tekið þátt í hálfmaraþoni Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka. Ekki er mælt með því að óvanir hlauparar taki þátt í þessari vegalend, enda ekki á allra færi að hlaupa rúman 21 kílómeter. Athugið að tímatakmörk í hlaupinu er 6 og hálf klukkustund en þau sem eru enn á Sæbraut til austurs verða beðin um að færa sig yfir gangstíg eftir 3 tíma.

    Skráning

    Skráning í hálfmaraþonið fer fram hér á vefnum rmi.is eða við afhendingu gagna í Laugardalshöll. Smellið hér til að fá nánari upplýsingar um skráningu í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. Mælum með að skrá á netinu þar sem það gæti orðið uppselt í viðburðinn.

    Hlaupaleiðin

    Hlaupið hefst eins og aðrar vegalengdir Reykjavíkurmaraþons í Sóleyjargötu og endar í Lækjargötu fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík. Hlaupið er um eftirfarandi götur og stíga:

    Sóleyjargata, Njarðargata, Sturlugata, Sæmundargata, Eggertsgata, Suðurgata, Lynghagi, Ægisíða, Nesvegur, Suðurströnd, Lindarbraut, Norðurströnd, Eiðsgrandi, Ánanaust, Fiskislóð, Hólmaslóð, Grandagarður, Mýrargata, Geirsgata, Kalkofnsvegur, Sæbraut í austur, Sægarðar, Sæbraut í vestur, Kalkofnsvegur og Lækjargata. Hlaupaleiðin er mæld samkvæmt stöðlum AIMS (alþjóðleg samtök hlaupa).

    Drykkjarstöðvar

    Í maraþoninu eru í heildina 10. Fyrstu tvær eru fyrir hlaupara í maraþoni, hálfmaraþoni og 10 km, en þær eru við Eiðistorg og Eiðsgranda, næst eru tvær á Sæbraut, sú fyrri við Hörpu og seinni hjá snúningspunkti við Sundahöfn með Gatorade og vatni. Síðasta stöðin í marki á Lækjargötu við Mæðragarð.

    Salernisaðstaða

    Færanleg salerni eru við hverja drykkjarstöð auk þess við rás- og endamarksvæði. Sjáðu kort af rás- og endamarki hér.

    Verðlaun

    Verðlaun eru veitt fyrir 1.-3. sæti í karla-, kvenna- og kváraflokki, er keppendur eru 3 eða fleiri í hverjum flokk. Einnig eru veitt aldursflokkaverðlaun fyrir fyrsta sæti í hverjum kynjaflokki en þau eru veitt þriðjudaginn eftir hlaup.

    Tímataka

    Sjálfvirk tímataka er í hlaupinu. Notaður verður tímatökubúnaður sem samanstendur af mottum í rásmarki sem hlauparar fara yfir í byrjun og enda hlaups en tímatökuflagan er innbyggð í hlaupanúmerinu hjá hverjum og einum.

    NÁNARI UPPLÝSINGAR

    Nánari upplýsingar um Reykjavíkurmaraþonið hér.

Loading...

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • Suzuki
  • ÍTR
  • 66 Norður
  • Gatorade