Allir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka fá verðlaunapening þegar þeir koma í mark. Fyrstu þrír karlar, konur og kvár í 10 km hlaupi, hálfmaraþoni og maraþoni með keppnismiða fá einnig verðlaunagripi fyrir sinn árangur ásamt fleiri verðlaunum.
Verðlaunafé
Veitt eru peningaverðlaun til fyrstu þriggja karla, kvenna og kvára í 10 km hlaupi, hálfmaraþoni og maraþoni með keppnismiða. Verðlaunin eru í íslenskum krónum og eru eftirfarandi:
Verðlaunagripur
Sigurvegarar í Reykjavíkurmaraþoninu fá glæsilegan verðlaunagrip sem í ár er hannaður af keramikhönnuðinum Dagnýju Gylfadóttur sem hannar undir merkinu DAYNEW.
Brautarmet
Sé brautarmet slegið er greiddur bónus, 50.000 kr. í hálfmaraþoni og 100.000 kr. í maraþoni. Þessi verðlaun verða veitt í Lækjargötu á hlaupdegi. Brautarmetið í maraþoni karla á Ceslovas Kundrotas (LTU) 2:17:06 og maraþoni kvenna Angaharad Mair (GBR) 2:38:47. Benjamin Serem (KEN) á brautarmetiðí hálfmaraþoni karla 1:04:09 en Martha Ernstdóttir (ISL) á mótsmet kvenna 1:11:40.
Verðlaunasæti
Fyrstu þrír karlar, konur og kvár í 10 km hlaupi, hálfmaraþoni og maraþoni með keppnismiða fá verðlaunagrip, peningaverðlaun auk verðlauna frá samstarfsaðilum Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka. *Amk 3 í hverjum flokki verða að ljúka hlaupi til að það teljist til keppni.
Gatorade sumarhlaupin
10 km hlaupið í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka er hluti af mótaröð sem ber nafnið Gatorade sumarhlaupin. Mótaröðin samanstendur af fimm hlaupum sem haldin eru af frjálsíþróttafélögunum í Reykjavík og Reykjavíkurmaraþoni með stuðningi frá Gatorade. Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka er síðasta hlaup mótaraðarinnar. Þrír stigahæstu hlauparar í karla og kvennaflokki fá verðlaun.
Aldursflokkar
Veitt eru aldursflokkaverðlaun fyrir fyrsta sæti í aldursflokkum karla, kvenna og kvára með keppnismiða. Afhending aldursflokkaverðlauna fer fram í vikunni eftir hlaupið við sérstaka athöfn. Þetta er gert til að tryggja að úrslit liggi örugglega rétt fyrir áður en verðlaunin eru afhent. Nánar um aldursflokkakeppni má finna hér.