Í tilefni af þrítugasta Reykjavíkurmaraþoninu, sem fram fór þann 24. ágúst 2013, var stofnaður Heiðursklúbbur Reykjavíkurmaraþons á skráningarhátíð hlaupsins þann 23. ágúst. Þeir hlauparar, sem lokið hafa 10 maraþonum eða hálfum maraþonum í Reykjavíkurmaraþoni öðlast aðild að klúbbnum. Veittar eru viðurkenningar til hlaupara þegar þeir hafa lokið 10, 15, 20, 25 og 30 hlaupum.
Smelltu á hnappana hérna fyrir neðan til að sjá lista yfir alla hlauparana sem tilheyra heiðursklúbbnum eða eru næst á lista. Listarnir eru birtir með fyrirvara um villur. Ef þú vilt koma á framfæri ábendingu varðandi gögn sem vantar eða að þörf sé á leiðréttingu er hægt að senda til okkar í gegnum þetta form: https://forms.office.com/e/Q5LXczu9Dr