Fyrsta skemmtiskokkið fór fram árið 1993. Undanfarin ár hafa um 2500 hlauparar verið skráðir til þátttöku Reykjavíkurmaraþons ár hvert.
Skemmtiskokkið er ræst kl 12:00. En hægt er að velja við ræsingu hvort er hlaupið 3 km eða styttri vegalengdina 1,7 km.
Skemmtiskokk er hentar öllum á hvaða aldri sem er. Mikið fjör verður á brautinni, þetta er partýhlaup með allskonar skemmtunum á leiðinni, fígúrur, froða*, dansarar og tónlist.
Þátttakendur
Skemmtiskokkið er fyrir öll, ung sem og aldin. Fólk með vagna og kerrur mega taka þátt í þessari vegalengd en skulu stilla sér upp aftast í starti og sýna sérstaka aðgát. Öll þau sem ætla að taka þátt verða að vera skráð og búin að sækja sitt hlaupanúmer þar sem númerslausum verður vísað úr brautinni. Leyfilegt er að taka þátt með hlaupanúmer úr annarri vegalengd.
Skráning
Skráning í skemmtiskokkið fer fram hér á vefnum rmi.is eða við afhendingu gagna í Laugardalshöll. Smellið hér til að fá nánari upplýsingar um skráningu í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka.
Hlaupaleiðin
Hlaupið hefst eins og aðrar vegalengdir Reykjavíkurmaraþons í Sóleyjargötu og endar í Lækjargötu fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík. Hlaupið er um eftirfarandi götur og stíga:
3 km leið: Sóleyjargata, Gamla Hringbraut, Smáragata, Njarðargata, Laufásvegur, Grundarstígur, Bjargarstígur, Þingholtsstræti, Hellusund, Skothúsvegur, Tjarnargata, Vonarstræti, Templarasund, Kirkjustræti, Pósthússtræti, Austurstræti, Veltusund, Hafnarstræti, Pótshússtræti, Tryggvagata, og Lækjargata.
1,7 km leið: Sóleyjargata, Njarðargata, Fjólugata, Skothúsvegur, Tjarnargata, Vonarstræti, Templarasund, Kirkjustræti, Pósthússtræti, Austurstræti, Veltusund, Hafnarstræti, Póshússtræti, Tryggvagata, og Lækjargata.
Drykkjarstöðvar
Það er drykkjarstöð fyrir framan Fríkirkjuna þar sem hægt er að fá sér drykki frá Ölgerðinni.
Salernisaðstaða
Færanleg salerni eru við hverja drykkjarstöð auk þess við rás- og endamarksvæði. Sjáðu kort af rás- og endamarki hér.
Verðlaun
Öll sem koma í mark og eru með skemmtiskokks hlaupanúmer fá verðlaunamedalíu.
Tímataka
Sjálfvirk tímataka er í hlaupinu. Notaður verður tímatökubúnaður sem samanstendur af mottum í rás- og endamarki sem hlauparar fara yfir í byrjun og enda hlaups en tímatökuflagan er innbyggð í hlaupanúmerinu hjá hverjum og einum. Þrátt fyrir að tímataka sé í hlaupinu eru ekki veitt sérstök verðlaun fyrir þau sem koma fyrst í mark í skemmtiskokkinu og eru úrslit birt í stafrófsröð og eru ekki kynja- eða aldursflokkuð. Tímatakan í þessu hlaupi er hugsuð til hvatningar fyrir hvern og einn en ekki út frá keppni.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Nánari upplýsingar um Reykjavíkurmaraþonið hér.