Hlauparar
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Fyrir rúmum tveimur árum þá átti samhjálp risa stóran þátt í því að ég fékk tækifæri á að snúa lífinu við. Ég fór í meðferð á Hlaðgerðarkot sem Samhjálp heldur úti og hef verið edrú síðan. Þegar ég tók ákvörðun að hlaupa Maraþon kom ekkert annað til greina en að styrkja Þetta mikilvæga og frábæra starf sem þau vinna. Endilega heitið á mig ætla að rústa þessum 42,2 km !!
Samhjálp
Í rúma hálfa öld hefur Samhjálp staðið vörð um þá sem lifa við fátækt og félagslega einangrun, sem oft er afleiðing af langvarandi glímu við fíkn. Samhjálp rekur meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot þar sem pláss er fyrir 30 einstaklinga í meðferð við fíknisjúkdómum, kaffistofu Samhjálpar sem gefur um 100 þúsund máltíðir á ári, ásamt áfanga- og stuðningsheimilum í Reykjavík og Kópavogi. Kaffistofan er opin alla daga ársins og þaðan eru gefnar allt að 250 máltíðir daglega. Heimasíða félagsins er www.samhjalp.is – Við erum jafnframt á Facebook https://www.facebook.com/samhjalp.is og Instagram https://www.instagram.com/samhjalp/?hl=en
Nýir styrkir