Kveðja frá hlaupastjóra

26. ágúst 2024

Kæru hlauparar, góðgerðarfélög, starfsmenn og önnur.

Í ár fögnuðum við 40 ára afmæli hlaupsins og það má með sanni segja að dagurinn hafi verið frábær í alla staði og meira að segja veðrið lék við okkur.

Við erum þakklát öllum þeim sem hafa tekið þátt í undirbúningi, starfað með okkur og stutt við bakið á okkur til að geta gert viðburðinn að veruleika. Íþróttafélögin sem útvega alla þessa sjálfboðaliða sem mæta í góðu skapi í fjáröflun fyrir sitt félag og sinna fjölbreyttum hlutverkum á hlaupadag eru ómetanlegir. Þeir starfsmenn sem láta sig aldrei vanta og heyra í okkur af fyrrabragði til að koma og aðstoða okkur við gæslu á braut, uppsetningu og verklag í hverju einasta maraþoni ár eftir ár til tryggja að allt gangi upp eru ómissandi og okkur svo dýrmætir. Yfir 500 sjálfboðaliðar leggja okkur lið við hlaupið og sinna hinum ýmsu störfum svo að upplifun hlaupara sé sem best. Markmið okkar er að allir geti tekið þátt og sinnt sínu starfi í öruggu og góðu umhverfi.

Við erum einstaklega ánægð með hlaupið í ár, en hátt í 15.000 hlauparar tóku þátt. Mikill fjöldi hlaupara voru skráðir til að safna fyrir góðgerðarfélög. Um 180 góðgerðarfélög voru skráð í ár og safnaðist yfir 250 milljónir, sem er hæsta upphæð sem hefur safnast í góðgerðarsöfnuninni frá upphafi Hlaupastyrks.

Þakklæti er okkur efst í huga.

Það sem tekur við núna er endurmat og frágangur, við hjá ÍBR erum alltaf að reyna að bæta upplifun hlaupara og erum strax farin að huga að næsta ári, en þá hlaupum við saman 23. ágúst. Hvetjum alla að svara viðhorfskönnun hlaupsins svo við getum í sameiningu gert umgjörð og upplifun enn betri að ári. 

Kærar þakkir fyrir samveruna í ár og verið dugleg að hlaupa í vetur. 

Hrefna Hlín Sveinbjörnsdóttir
Hlaupstjóri Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • Suzuki
  • ÍTR
  • 66 Norður
  • Gatorade