Team
Siggi Pétur sem allt getur
Supporting The Alzheimers Association of Iceland
Total collected
Goal
thank you for your support!
Við frændsystkinahópurinn ætlum að hlaupa fyrir Alzheimersamtökin. Edda amma og Siggi afi hafa alltaf verið okkar stoð og stytta og hafa alltaf elskað að dekra við okkur barnabörnin. Það eru því miður alltof mörg ár síðan fyrstu einkenni alzheimersjúkdómsins fóru að gera vart við sig hjá elsku Sigga afa okkar. Hann er alltaf hlýi og góði afi okkar en það er átakanlegt að sjá hann veikjast meira hægt og rólega. Starf Alzheimer samtakanna er gríðarlega mikilvægt en Siggi afi hefur sótt dagvistun hjá Seiglunni og Drafnarhúsi þar sem hann getur stundað ýmsa iðju og umgengst fólk á svipuðu reiki. Þá veita Alzheimer samtökin ómetanlegan stuðning til maka og annarra aðstandenda. Það er ekki af ástæðulausu sem við sögðum alltaf í uppvextinum “Siggi Pétur í allan vetur sem allt getur” en afi hefur alltaf getað allt og við ætlum að fara inn í þetta hlaup með sama hugarfar að leiðarljósi. Við dýrkum og dáum Sigga afa okkar og hlökkum til að hlaupa fyrir hann og safna áheitum fyrir Alzheimer samtökin. Hægt er að kynna sér samtökin og þeirra ómetanlega starf inná alzheimer.is og á Facebbok síðu félagsins.
The Alzheimers Association of Iceland
Munum leiðina.... Ætlar þú að hlaupa í Reykjavíkur maraþoninu? Við höfum fengið ómetanlegan styrk í gegnum árin frá hlaupurum á öllum aldri. Þú getur styrkt okkur með þínu hlaupi í ágúst. Munum leiðina...
Runners
Ragnheiður Edda Hlynsdóttir
Daníel Arnar Arnar Magnússon
New pledges