Runners
Total collected
Goal
thank you for your support!
Ég ætla að hlaupa til minningar um elsku pabba. Hann lést í júní síðastliðnum eftir erfiða og langa baráttu við Lewy Body, andstyggilegan heilabilunarsjúkdóm. Sjúkdómurinn hefur mikil áhrif á einstaklinginn sjálfan og þá sem standa honum næst. Alzheimersamtökin hafa gert vel í að opna umræðuna um heilabilunarsjúkdóma og bjóða upp á fræðslu og stuðning fyrir einstaklinga sem greinast með slíka sjúkdóma og aðstandendur þeirra. Starfsfólk samtakanna vinnur ómetanlegt starf og hefur þjónusta þeirra reynst mér og mínum vel síðustu árin, þá sérstaklega stuðningshóparnir. Ég hvet alla sem hafa tök á að heita á mig, leggja þessu mikilvæga málefni lið og um leið heiðra minningu elsku besta pabba.
The Alzheimers Association of Iceland
Munum leiðina.... Ætlar þú að hlaupa í Reykjavíkur maraþoninu? Við höfum fengið ómetanlegan styrk í gegnum árin frá hlaupurum á öllum aldri. Þú getur styrkt okkur með þínu hlaupi í ágúst. Munum leiðina...
New pledges