Runners
Halla Karen Karen Kristjánsdóttir
Supporting The Alzheimers Association of Iceland and is a member of Heilsa og Hugur
Total collected
Goal
thank you for your support!
Markmiðið er að fara með hóp fólks 67 ára og eldra úr Mosfellsbæ í 10 km í Reykjavíkurmaraþoni og láta gott af sér leiða í leiðinni. Þessi fjörugi og skemmtilegi hópur kvenna og karla ætlar sér að ganga rösklega þessa 10 km í Reykjavíkurmaraþoni þann 24. ágúst og styrkja í leiðinni Alzheimersamtökin.
"Ein besta forvörnin gegn heilabilunarsjúkdómnum er regluleg hreyfing. Að koma púlsinum í gang daglega getur gert kraftaverk og er gott fyrir líkama og sál." og "Þjálfaðu heilann reglulega og haltu áfram að læra út lífið og stígðu reglulega út fyrir þægindarrammann. Það er hollt fyrir bæði líkama og sál."
Það er gaman að þjálfa þennan hóp, við hlökkum öll til dagsins og að láta gott af okkur leiða. Því þætti okkur vænt um að fá stuðning frá ykkur með áheitum.
Margt smátt gerir eitt stórt.
Broskveðja Halla Karen
The Alzheimers Association of Iceland
Munum leiðina.... Ætlar þú að hlaupa í Reykjavíkur maraþoninu? Við höfum fengið ómetanlegan styrk í gegnum árin frá hlaupurum á öllum aldri. Þú getur styrkt okkur með þínu hlaupi í ágúst. Munum leiðina...
New pledges