Góðgerðarmál
Barnaspítalasjóður Hringsins, Vökudeild, Hringurinn
Samtals Safnað
Fjöldi áheita
Úr Barnaspítalasjóði Hringsins eru árlega veittir styrkir til að bæta aðbúnað barna sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda. Það hefur verið metnaður Barnaspítalasjóðs frá stofnun hans 1942 að börn hafi aðgang að bestu lækningatækjum og búnaði sem til er á hverjum tíma. Eitt af aðalverkefnum sjóðsins síðustu ár hefur verið að styrkja Vökudeildina svo aðbúnaður þar sé sá allra besti sem völ er á fyrir þau börn og foreldra sem þurfa að nýta þjónustu Vökudeildar.
Í ár söfnum við fyrir 12 sérútbúnum vöggum fyrir fyrirbura, tíu vöggum fyrir einbura og tveim fyrir tvíbura. Það eru komin 14 ár síðan vöggurnar voru endurnýjaðar á Vökudeildinni.
Leggðu okkur lið og hlauptu Hring fyrir Hringinn. Allt sem safnast rennur óskipt til tækjakaupa.
Hlauparar Hring fyrir Hringinn eru velkomnir á Facebook síðu hlaupara https://www.facebook.com/groups/472947570124360/
Þá verðum við með bás á Fit&Run expo 22. og 23. ágúst og hvetjum hlauparana okkar til að kíkja við, ná í glaðningana sína og segja hæ :)
Hlökkum til að sjá ykkur 24. ágúst!
Einstaklingar sem safna fyrir félagið
Hópar sem safna fyrir félagið
Á síðustu stundu
Hefur safnað 29.000 kr. fyrirHlaupahópur Vökudeildar 2024
Hefur safnað 304.000 kr. fyrirHlaupum fyrir englana okkar ❤️
Hefur safnað 77.000 kr. fyrirNýir styrkir