10 K

Sylvía Rún Hálfdanardóttir

Supporting Icelandic Childhood Cancer Organization and is a member of Team Abra

Total collected

19,000 kr.
95%

Goal

20,000 kr.
Donations are now closed,
thank you for your support!

Annað  árið í röð ætlar Team Abra að hlaupa fyrir SKB, (styrktarfélag krabbameinssjúkra barna). Í þetta skipti mun öll fjölskyldan (líka Kristján Leó sjálfur með hjálp frá aðstandendum og hjólastól á kantinum ef á þarf) hlaupa og vonandi bætast fleiri fjölskyldumeðlimir og vinir við🥰

2023 - 2024 hefur verið mjög erfitt ár fyrir fjölskylduna og þá sérstaklega fyrir Kristján Leó, sonur systur minnar. Hann fékk stórt aukaverkefni í hendurnar í lífinu, illkynja heilakrabbamein að nafni Medulloblastoma. Eftir bráða lífshættulega og lífsbjargandi heilaskurðaðgerð febrúar 2023, geislameðferð á heila og mænu ásamt krabbameinslyfjameðferð sem lauk 7. mars 2024 þá fékk hann gott svar eftir segulómun á heila í apríl. Flottar myndir og núna byrjar eftirfylgni með segulómmyndatöku af heila reglulega næstu 5 árin og áframhaldandi eftirfylgni með ýmsum hætti út lífið, t.d vegna aukaverkana af krabbameinsmeðferðinni (geislum og lyfjameðferð). Hæsta áhætta á endurkomu krabbameinsins er fyrstu 2 árin. Við vonum það besta og höldum áfram að vera í núinu og venjast nýju lífi og að komast til baka í hversdagsleikann.


Lífið er núna!🩷

Icelandic Childhood Cancer Organization

Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna var stofnað 1991 af foreldrum barna með krabbamein en árlega greinast 12-14 börn með krabbamein á Íslandi. Tilgangur félagsins er að styðja krabbameinssjúk börn og aðstandendur og gæta hagsmuna þeirra á öllum sviðum. Það sinnir fræðslu- og útgáfustarfsemi um sérstöðu og þarfir krabbameinsveikra barna og um síðbúnar afleiðingar eftir krabbameinsmeðferð.

New pledges

Pledge history

Amount5,000 kr.
🍎
Elfa Ýr
Amount5,000 kr.
No message
Kristín Lovísa
Amount1,000 kr.
🩷
Amount2,000 kr.
🍎
Theodóra Björk Heimisdóttir
Amount5,000 kr.
No message
Hólmfríður Rut Gísladóttir
Amount1,000 kr.
No message

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • Suzuki
  • 66 Norður
  • Gatorade