Runners
Total collected
Goal
thank you for your support!
Vinkona mín og stuðboltinn Klara, dóttir vina minna, lenti í alvarlegu hoppukastalaslysi sumarið 2021 og hlaut þar alvarlega höfuðáverka. Reykjadalur hefur spilað stórt og mikilvægt hlutverk í hennar lífi síðan þá. Hún hefur eytt þar ótal gæðastundum sem hafa fyllt hana af gleði en þessir tímar hafa einnig skapað svigrúm fyrir foreldra hennar til þess að geta hlúið að sér.
Ég mun hlaupa í fyrsta sinn 10 KM á ævinni- og þætti vænt um að fá alla þá hvatningu sem fólk hefur ráð á að legga inn (helst í formi peninga) til að við getum tryggt að Reykjadalur geti haldið þessu vandaða starfi áfram!
Camp Reykjadalur
Reykjadalur eru sumarbúðir í Mosfellsdal fyrir fötluð börn og ungmenni. Í Reykjadal eru skapaðar ógleymanlegar minningar, farið í óvissuferðir og notið samverunnar.
New pledges