Runners
Total collected
Goal
thank you for your support!
Mig langar að leggja mitt að mörkum.
Minningarsjóður Hróars var stofnaður í minningu Baldvins Hróars, sem var bróðir góðrar vinkonu. Hann lést 9.júlí 2020, aðeins fertugur. Sjóðurinn var stofnaður til að styrkja efnaminni iðkendur til þátttöku í starfi barna- og unglingastarfs Þróttar í Vogum. Ég bjó í Vogum í 17 ár og hef miklar taugar til bæjarins.
Minningarsjóður Hróars
Ungmennafélagið Þróttur og Nesbúegg stofnuðu minningarsjóð Hróars. Baldvin Hróar sem lést 9. júlí 2020 var virkur félagi í starfi Ungmennafélagsins Þróttar og var formaður félagsins 2017 til 2019. Markmið sjóðsins er að styrkja iðkendur til þátttöku í starfi barna- og unglingastarfs Þróttar, styrkja iðkendur um mótagjöld, ferðakostnað vegna keppnisferða og veita styrki til kaupa á æfingabúnaði, til að mynda á skóm og æfingafatnaði í tengslum við stærri mót. Auk þess styrkir sjóðurinn fræðslu og útbreiðslumál innan félagsins.
New pledges