Runners
Total collected
thank you for your support!
Systir mín greindist með MS árið 2011. Bara ef þið vissuð áskoranirnar sem hún mætir á hverjum degi, með bros á vör og æðruleysi. Við ráðum ekki alltaf hvaða spil við fáum á hendi en við ráðum hvernig við spilum úr þeim. Systir mín er þvílík hvunndagshetja og fyrirmynd.
Einkenni MS sjúkdómsins eru margbreytileg og því er stundum talað um MS sem sjúkdóminn með þúsund andlit. Sum einkenninn sjást en önnur ekki.
Því miður eru allt of margir sem greinast ekki nógu tímanlega m.a. vegna þess að einkennin geta legið niðri í vikur, mánuði eða jafnvel mörg ár. MS sjúkdómurinn er einn algengasti sjúkdómurinn í miðtaugakerfi hjá ungu fólki. Hvet fólk til að lesa sig til um sjúkdóminn inn á msfelag.is
MS-Society of Iceland
MS er einn algengasti taugasjúkdómurinn sem leggst á ungt fólk og greinast um 25 árlega á Íslandi, flestir á aldrinum 20-40 ára. MS-félagið veitir jafnt MS-greindum sem aðstandendum ráðgjöf, fræðslu og stuðning. Þinn stuðningur er ómetanlegur í starfi félagsins.
New pledges