Runners
Total collected
Goal
thank you for your support!
Jæja, nú eru 10 ár síðan ég greindist með nýrnabilun á lokastigi. Á einum fundi okkar Runólfs Pálssonar reyndi hann að stappa í mig stálinu og sagði mér að fólk með ígrætt nýra hefði hlaupið maraþon og hér er ég nú 5500 hlaupnum km síðar að gera mína fyrstu tilraun til þess. Sjáum hvað setur 😅
Nýrnafélagið er mikilvægt fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra.
Icelandic Kidney Association
Markmið Nýrnafélagsins er að styðja alla nýrnasjúka og aðstandendur þeirra og einnig að stuðla að forvörnum til að hægja á nýrnabilun. Nýrnafélagið vinnur að því að allir nýrnaveikir fái bestu meðferð sem er í boði hverju sinni. Hjá félaginu fást upplýsingar um sjúkdóma í nýrum og meðferð við þeim. Fréttabréf er gefið út og haldnir eru fræðslu- og skemmtifundir. Tengslahópur nýrnasjúkra og aðstandenda þeirra veitir þeim sem veikjast stuðning. Einnig er starfræktur hópur foreldra nýrnasjúkra barna í tengslum við Umhyggju. Félagið býður upp á tíma hjá fjölskyldufræðingi og hjá næringarfræðingi gjaldfrjálst til allra sinna félaga.
New pledges