Runners
Total collected
Goal
thank you for your support!
Haukur Freyr tók þátt í Reykjavíkurmaraþoni 2023 í fyrsta skipti og tók þátt í 3km skemmtiskokkinu. Nú ætlar hann að hlaupa 10km og um leið styrkja Dropann, styrktarfélag barna með sykursýki. Þar sem Haukur er sjálfur með sykursýki 1, þá er nauðsynlegt að hafa svona stórkostlegt félag eins og Dropann sem gerir allt fyrir börnin. Dropinn leyfir börnum að fá að komast í sumarbúðir í Skagafjörð fyrir yngri börnin og í vikudvöl á skútu í Svíþjóð þar sem sykursýkisteymi barna fara með þeim og halda utan um börnin án þess að foreldrar þurfi að stressa sig. Haukur hefur farið í báðar sumarbúðirnar og segir t.d. að skútuferðin sé ein sú skemmtilegasta ferð sem hann hefur farið í. Dropinn gerir svo miklu meira fyrir börnin og því er ekki annað í stöðunni en að styrkja svona geggjað félag.
Dropinn, the Icelandic charity for children with diabetes
Dropinn skipuleggur sumarferðir á hverju ári fyrir börn og unlinga með sykursýki sem og samkomur þar sem fjölskyldur barna með sykursýki hittast.
New pledges