Runners
Total collected
Goal
thank you for your support!
Í ársbyrjun 2023 var ég á versta stað sem ég hef verið á varðandi líkamlega heilsu. Alltof þungur, verkjaður og átti orðið mjög erfitt með gang. Á endanum gaf skrokkurinn sig og við tók spítalavist og og kjölfarið endurhæfing á Heilsustofnuninni í Hveragerði.
Á stofnuninni fékk ég betri þjónustu en ég hafði nokkurntímann þorað að vona. Þjónustan og fræðslan sem ég fékk þar hefur lagt grunninn að því að ég er núna orðinn 35 kg léttari, verkjalaus og í besta formi fullorðinsára minna.
Ég er óendanlega þáttur fyrir tækifærið að fá að eyða mánuði í meðhöndlun sérfræðinga sem hjálpuðu mér að snúa blaðinu við og þess vegna ætla ég að hlaupa 10 km til styrktar Hollvinafélagi HNLFÍ
Hollvinasamtök Heilsustofnunar NLFÍ
Hollvinasamtök Heilsustofnunar í Hveragerði hafa allt frá stofnun (árið 2005) stutt dyggilega við tækjakaup fyrir starfsemi Heilsustofnunar. Lögð er áhersla á að kaup á búnaði komi til góða fyrir dvalargesti Heilsustofnunar en um 1.350 manns koma til endurhæfingar á ári hverju. Um 1.000 manns eru í samtökunum og rennur allt fjármagn sem Hollvinasamtökin safna óskert til tækjakaupa.
New pledges