Runners
Kristín Hulda Bjarnadóttir
Supporting Memorial fund of Hjalti Þór Ísleifsson mathematician and is a member of Minning Hjalta Þórs lifir
Total collected
thank you for your support!
Ég hleyp í Reykjavíkurmaraþoninu í nafni Hjalta Þórs Ísleifssonar en hann var ótrúlega efnilegur ungur maður í doktorsnámi í stærðfræði í Zürich. 15. desember 2023, þá aðeins 27 ára gamall, fylltist hugur Hjalta af ranghugmyndum sem nákvæmlega enginn fótur var fyrir og leiddi til þess að hann tók eigið líf.
Það var Hjalta hjartans mál að allir hefðu sömu tækifæri til menntunar, óháð efnahag eða aðstæðum og stofnaði móðir Hjalta, Heiður samstarfskona mín, minningarsjóð til þess að framfylgja þeirri ósk. Tilgangur minningarsjóðsins er að hvetja efnilega stærðfræðinema til framhaldsnáms í stærðfræði.
Minning Hjalta Þórs lifir! ✝
Memorial fund of Hjalti Þór Ísleifsson mathematician
Minningarsjóður Hjalta Þórs Ísleifssonar stærðfræðings var stofnaður af Heiði móður Hjalta Þórs, sl. vetur. En Hjalti Þór lést 15. desember 2023.
New pledges