Runners
Total collected
Goal
thank you for your support!
Rokkbúðirnar í Tógó eru uppspretta svo mikillar gleði, valdeflingar, sköpunar og hávaða. Ég hef fylgst með verkefninu blómstra og upplifað töfrana sem gerast þegar ungmenni koma saman í frjálsri sköpun, hljóðfæraleik, söng og dansi í sínu eigin rými. Samtökin þurfa á stuðningi að halda svo verkefnið megi vaxa og dafna á komandi árum, við bjóðum öllum vinum og velgjörðarfólki okkar að leggja okkur lið í að tryggja framtíð rokkbúðanna.
Læti! / Girls Rock!
Læti! / Stelpur rokka! starfa af femínískri hugsjón við að efla jaðarsett kyn í gegnum tónlistarsköpun og jafnréttisstarf. Við stuðlum að jafnrétti og inngildingu í tónlist og fræðum bæði þátttakendur og aðra um jafnréttismál á því sviði. Við ætlum að styrkja okkar kæru vinkonu Mirlindu sem heldur utan um Girls Rock Togo.
New pledges