Runners
Total collected
Goal
thank you for your support!
Ég ætla að hlaupa mitt fyrsta hálfmaraþon fyrir yndislegu vinkonur mínar og litlu krúttin þeirra í Kenía.
Síðastliðið haust var ég sjálfboðaliði á Haven Rescue Home sem er heimili fyrir ungar mæður, stelpur á aldrinum 12-18 ára. Eitt af þeim vandamálum sem fylgir fátæktinni í landinu er að ungar stelpur sem verða barnshafandi eigi litla sem enga möguleika á að ljúka skólagöngu sinni. Haven gefur þessum stelpum möguleika á bjartari framtíð með því að hjálpa þeim að klára skólann án þess að þurfa gefa barnið sitt frá sér.
Samstaðan, ástin og kærleikurinn sem fylgir þessum flottu stelpum er ótrúlegur og ætla ég að gera þetta fyrir þær!
Ég væri afar þakklát ef þið sjáið ykkur fært um að heita á mig og styðja þannig við bakið á þessu frábæra framtaki <3
Haven Rescue Home
Haven Rescue Home (HRH) er heimili fyrir stúlkur, 18 ára og yngri, sem eru barnshafandi og mæður ungra barna. Markmið HRH er að gefa þessum stúlkum tækifæri til betra lífs. Á meðan þær klára skólagönguna er þeim boðið að búa með barnið sitt inni á heimilinu og fá nauðsynlega aðstoð til að geta sinnt bæði skóla og barni. Með því að klára skólagöngu eiga þær svo möguleika á að fá góða vinnu og geta flutt út í þjóðfélagið aftur sem sterkari einstaklingar.
New pledges