10 K - Regular registration

Ninna Karla Katrínar

Supporting Mindpower

Total collected

1,000 kr.
1%

Goal

100,000 kr.

Preferred Payment Method

Mastercard

Þau sem mig þekkja vita að ég er alls enginn hlaupari og finnst hreinlega ekki gaman að hlaupa. Hinsvegar finnst mér mjög gaman að dansa og sérstaklega að dansilabba, en það er eitthvað sem ég lærði í Hugarafli og er eitt af þeim verkfærum sem hafa hjálpað mér heilmikið í batavinnunni minni. Að dansilabba - og vera alveg sama um allt á meðan - er svo frelsandi, valdeflandi og skemmtilegt að ég ætla að dansilabba 10 kílómetra í ágúst til styrktar elsku Hugaraflinu mínu. 

Ég hef verið í endurhæfingu í Hugarafli í tæp 5 ár og á félaginu allt mitt að þakka. Það er Hugarafli að þakka að ég er á lífi í dag og ég sé mikilvægi Hugarafls á hverjum degi þar sem ég er þeirrar gæfu aðnjótandi að vera orðin starfsmaður félagsins og fæ að fylgjast með fólki í bata á hverjum degi. Það er nauðsynlegt að halda lífi í félagi sem Hugarafli og ein leið til þess er að heita á mig í þessu hlaupi! 

Mindpower

Hugarafl eru félagasamtök fólks sem hefur upplifað persónulega krísu og vinnur að persónulegum bata sínum. Við erum stærstu grasrótarsamtök fólks með andlegar áskoranir á Íslandi og látum rödd okkar heyrast varðandi geðheilbrigðismál. Félagið var stofnað árið 2003. Starfsemi Hugarafls er mótuð bæði af einstaklingum með persónulega reynslu af andlegum áskorunum (stundum kallað notendur) og einstaklingum með fagmenntun. Þátttaka í starfsemi Hugarafls er fyrir öll, 18 ára og eldri, sem hafa áhuga á að vinna í geðheilsu sinni á eigin forsendum. Starfsemin er algjörlega gjaldfrjáls, óháð búsetu og engin krafa er gerð um tilvísanir né geðsjúkdómagreiningar.

New pledges

Pledge history

Sylli
Amount1,000 kr.
Snillingur💪🏼

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • Suzuki
  • 66 Norður
  • Gatorade