Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa fyrir góð málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka upphæð að eigin vali. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða. Hægt er að heita á hlaupara fram að miðnætti mánudaginn 22. ágúst en hlaupið fer fram laugardaginn 20. ágúst.
Auðvelt er að heita á hlaupara hér á hlaupastyrkur.is. Bæði er hægt að greiða áheit með kreditkorti og með því að senda áheitanúmer keppenda sem sms skeyti.
Hægt er að heita á einstaklinga og boðhlaupslið. Auðvelt er að leita að einstakling eða liði með því að slá inn nafn eða hluta úr nafni viðkomandi í leitarstrenginn. Einnig er hægt að finna hvaða einstaklingar og lið hlaupa fyrir hvert góðgerðafélag í listanum yfir góðgerðafélög.
Ef þitt góðgerðafélag er ekki á listanum getur þú bent því á að skrá sig til þátttöku með því að senda póst á aheit@marathon.is. Skráningu góðgerðafélaga lýkur miðvikudaginn 17.ágúst.